Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún. Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn, Sólskin í dali og blómstur í tún. Hún hefur sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót. Hún hefur sagt mér að vaka og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót.