Secret weapon how to promote your YouTube channel
Get Free YouTube Subscribers, Views and Likes

Rauða borðið 16. okt - Stjórnmál samfélagið klassísk tónlist og landflótti Íslendinga

Follow
Samstöðin

Miðvikudagurinn 16. október 2024
Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendinga.

Við hefjum leik á pólitíkinni og stöðunni sem upp er komin. Við munum kjósa í svartasta skammdeginu eftir nokkrar vikur. Stór hópur fólks hittist í beinni útsendingu og ræðir hvað ber að varast, auk þess sem óskalista kosningamála ber á góma. Þau Jódís Skúladóttir, þingmaður VG, Þórhildur Sunna, þingmaður pírata, Auður Önnu Magnúsdóttir hjá Kvenréttindafélaginu, Henry Alexander siðfræðingur, Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Sara Óskarsdóttir móðir og listamaður og Ólafur Arnarsson blaðamaður ræða við Björn Þorláks.
Að lokinni pólitíkinni kemur Michael Clarke, tónlistarmaður á Akureyri, og ræðir norðlenska tónlistarsögu og stofnun Hljómsveitar Akureyrar.
Rúsínan í pylsuendanum er Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikhúsmanneskja. Hún ræðir alöru þess að hrekjast úr landi, en hnyttnin er aldrei fjarri þegar Hlín er annars vegar.

posted by Negeb2e