Free views, likes and subscribers at YouTube. Now!
Get Free YouTube Subscribers, Views and Likes

Stórfyrirtæki mögulega á förum

Follow
mbl.is

Siglfirska líftæknifyrirtækið Genís er metið á 23 milljarða króna, sé miðaðvið verðmat í tengslum við 1,1 milljarðs króna hlutafjáraukningu sem ráðist var í fyrir skemmstu. Róbert
Guðfinnsson stofnandi fyrirtækisins fer með 70% hlut í félaginu og er hann samkvæmt þessu metinn á 16 milljarða króna. Róbert segir að stefnumörkun á komandi mánuðum muni leiða í ljós hvort félagið eigi sér framtíð á Siglufirði eða annars staðar. Vonbrigði séu fólgin í því að sveitarfélagið hafi ekki ráðist í uppbyggingu í samfélaginu sem samkomulag náðist um fyrir 12 árum. Í þeim samningi skuldbatt Róbert sig til þess að fjárfesta myndarlega í samfélaginu, m.a. með hóteluppbyggingu og innspýtingu í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Róbert er viðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í Dagmálum.

posted by hughmjackman4s